Sólin skín og um það bil 25 stiga hiti úti. Mér sýnist að nýjasta accessorið hjá meirihluta kvenna hér í Kaupmannahöfn á aldrinum 22 - 35 (að ekki sé talað um ALLAR konur á Íslandi í þessum aldurshóp) sé eitt eða fleiri af eftirfarandi:
a) Hvítvoðungur með reikult augnaráð og patandi hendur.
b) smábarn með snuddu og gjarnan í yfirmáta krúttulegum skóm.
c) bumbu sem gefur til að kynna yfirvofandi heimsókn á Hvidovre Hospital.
Ég hef ekkert af þessu og er að íhuga að hafa samband við sæðisbanka eða jafnvel auglýsa í Søndagsavisen.
Abonner på:
Kommentarer til indlægget (Atom)
4 kommentarer:
er ekki barnabarn stalíns bara ágætis banki eða hvernig er þetta eiginlega hjá ykkur....????
En mun mikilvægara, hvernig var Antichrist?
Eins hræðileg og allir segja? Er elskan mín hann Lasse eins sjúkur á sálinni og flestir þurrhausa-kvikmyndagagnrýnendur virðast vera "rörande eniga" um?
Á ég að hætta að láta mig dreyma um deit með herr von Trier....???
Barnabarnabarn Stalíns verður ekki notaður til undaneldis, ég held að það yrði algert katastrófumix. Og ef að þig dreymir um deit með Lassa Von Trier ertu nú klikkaðri en ég hélt.
það er að venju ekki verið að skafa af hlutunum hjá fulltrúa addams í köbenhavn.....ég get annars ekki séð annað en Trier litli falli fullkomlega inn í munstrið "sjálfhverfir drengir á öllum aldri með allt frá djúpri til sjúklegri móðurbindingu" sem hingað til hefur verið ákveðið tema í vali mínu á einstaklingum af hinu kyninu.
Nei, þakka veit ég blessaðri naglamottunni sem nú vermir mitt ból öll kvöld....
almattugur.. thid erud rosalegar!
reyndar dreymdi mig minn klassiska tviburadraum i nott, mig dreymir nefnilega ekki oft ad eg eigi barn eda se olett, nei eg a nyfaedda tvibura! their eru oft svo ofurlitlir ad eg missi tha gjarnan, en i nott var sagan onnur, missti ekki annad theirra einu sinni! hahh! thetta voru strakar og annar theirra var ljoshaerdur og blaeygdur en hinn dokkhaerdur og bruneygdur. sa ljosi gret mikid en eg kunni vel a hann, sa bruneygdi var yndislegt barn sem gaf ekki fra ser mukk nema litid fliss med brosinu sinu! :D thad var samt mikil haetta a ferd i thessum draumi, brjaladur simpansi og risamavar i gardinum og einhvern veginn komust thessi kvikindi inn til min thar sem eg helt a badum drengjunum minum og atti thvi erfitt um vik ad verja okkur... engan sakadi tho.
Send en kommentar