Nú er ég komin heim eftir 17 daga í Rússlandi. Þó mér finnist alltaf gaman að koma til Rússlands, þá finnst mér eiginlega alltaf betra að koma þaðan, því eftir viku dvöl er ég orðin uppblásin af sykri, hvítu hveiti og himinháu fitumagni í öllum mat. Í þetta sinn lét ég sérstaklega vel við mig í eftirréttunum, því engan drakk ég bjórinn, og eftir meira en tvær vikur af svoleiðis gamani var ágætt að komast heim í mitt venjulega ökologiska og fair trade líf.
Jæja, en við erum að flytja. Therese vinkona mín, sem á þessa íbúðarögn sem við höfum búið í undanfarið ár, kemur heim á morgun og við erum því að flytja út í Brönshöj, í 51 fermetra íbúð með bakgarði og ágætis eldhúsi. Úthverfalífið hefst því í þessari viku, það mun þó væntanlega ekki vara lengur en hálft ár, því þetta er einungis tímabundin leiga. Við þorðum ekki annað en að taka þessa íbúð þegar ekkert gekk að finna húsaskjól, en auðvitað er svo búið að bjóða okkur tvær miklu hentugri íbúðir eftir að við skrifuðum undir og borguðum trygginguna. En hvað um það, það er ekki hægt að bæði halda og sleppa, og ég er ágætlega sátt við þessa íbúð. Við fórum í IKEA í dag eins og öllum ungum turtildúfum sæmir, og festum þar kaup á ágætis sófa (sem hægt er að draga út í tveggja manna svefnsófa, svo komiði bara í heimsókn), rúmi, sem við ætlum þó kannski að skila þar sem okkur hefur boðist ókeypis rúm, mjúkri og góðri dýnu, borði og fjórum stóltutlum. Sófann skoðuðum við lengi og lögðumst bæði í hann til að sannreyna að við kæmumst þar bæði fyrir endilöng. Eins létum við fara vel um okkur á mörgum dýnum áður en við tókum endanlega ákvörðun, og fjárfestum að lokum í fínni dýnu sem kostaði um 3.000 kr (danskar). Fátt jafnast á við tilfinninguna að vera að kaupa sér ný húsgögn í fyrsta sinn, eiginlega allt sem ég hef átt hingað til hef ég keypt notað eða fengið gefins, en í þetta sinn var það mitt skilyrði að við keyptum nýjan sófa og nýja dýnu, því ég er komið með nóg af þvi að kútveltast í annarra manna svita og húðflögum. Svo ætla ég að dútla mér við að kaupa stólasetur, dúka og teppi næsta mánuðinn, og innrétta okkar nýju híbýli eins vel og hægt er. Reyndar eru þarna fyrir nokkrar alveg forljótar mublur, en ég er búin að ákveða að láta sem ég sjái þær ekki, eða þá breiða dúka eða teppi yfir þær. Næst þegar við flytjum vil ég flytja inn í alveg ómubleraða íbúð, eða vonandi kaupa íbúð, en ég veit ekki hvort ég hef efni á því enn sem komið er.
tirsdag den 28. oktober 2008
tirsdag den 7. oktober 2008
Ég er svo aldeilis hlessa á því sem ég hef lesið í fjölmiðlum í dag. Rússland að lána Íslendingum pening? Það var mikið hlegið í vinnunni í dag (mér var reyndar ekki skemmt) og ég missti mig og fór að skamma alla nærstadda fyrir hroka Dana í garð Norður-Atlantshafsþjóðanna, en þær skammir fóru algerlega fyrir ofan garð og neðan. Það var helst að yfirmönnum mínum væri skemmt enn fremur frekar en að skammast sín. Ég veit svosem ekki hvað ég á að segja við svona fréttum, þetta er eitthvað svo ótrúlegt. En þið sem heima á Fróni sitjið eruð sjálfsagt í enn meira sjokki en ég.
Abonner på:
Opslag (Atom)