fredag den 19. juni 2009

Mér þykir hart að mér vegið þessa dagana. Frá liðinu þarna uppi, það er að segja. Vikan byrjaði með kómatós í Kommunernes Landsforening, þar sem ég átti að túlka fyrir gesti frá úkraínska stjórnarapparatinu. Skemmst er frá því að segja að þetta fór allt í vitleysu, ég mætti á réttum tíma og hafði undirbúið mig, en bölvaðir geitarskeggirnir voru þá auðvitað komnir löngu á undan og móðri og másandi var mér boðið að setjast við borð og byrja að túlka. Það var nú ekki að ég skildi ekki það sem maðurinn við hliðina á mér var að segja eða hvernig ætti að koma þessu til skila á rússnesku. Það var bara eitthvað við þessar formlegu aðstæður, fjölda jakkafata og gráa hára í herberginu og þeirri lamandi tilfinningu að minnsta villa í túlkuninni myndi hrinda af stað diplómatískri katastrófu á alþjóðlegu plani, sem gerði að öll mín rússneska var svo gott sem gleymd. Ég skalf á beinunum, tungan vöðlaðist saman í munninum á mér, ég svitnaði og mig svimaði og ég hef örugglega ranghvolft augunum þó nokkrum sinnum. Eftir u.þ.b. klukkutíma af þessum sjálfsköpuðu pyntingum var kvatt til hlés. Ungi aðstoðarmaðurinn kallaði hljóðlega á mig og tilkynnti mér með afskaplega vandræðalegu brosi að því miður væri víst best að ná í aðeins reyndari túlk, og ég gat ekki annað en verið honum hjartanlega sammála.

Ég engdist aðeins yfir þessari frekar óskemmtilegu reynslu í tvo daga, en þegar þjóðhátíðardagur okkar Íslendinga rann upp var mér orðið nokkurn veginn sama, og var búin að ákveða að taka "Ekki skal gráta Björn bónda, heldur safna liði og hefna"- afstöðuna á þetta.

Svo ætlaði ég að fara til Malmö með Annemette á morgun og kaupa mér nýja tölvu, tjald og eitthvað fleira skemmtilegt. Svíarnir ákváðu þá auðvitað að hafa Miðsumar þessa helgina og hafa LOKAÐ í búðum. Við urðum grautfúlar þegar við komumst að þessu og sótbölvuðum frændum vorum handan við sundið. Í ofan á lag er búið að vera rok og rigning alla helgina, ég þarf að flytja héðan á föstudaginn eftir viku og er eftir það heimilislaus.

1 kommentar:

Halla sagde ...

elskan min!
eg er mjog stolt af ther fyrir "Bjorn bonda" afstoduna og lattu ekki sviadjoflana skemma jakvaednina fyrir ther ;)