onsdag den 2. september 2009

Er flutt. Bý enn sem komið er í hálfgerðri kassahrúgu en hef nú fest kaup á ósköp vinalegum dökkbláum sófa. Svo kemur þetta allt saman. Eða svo segja menn víst.

onsdag den 26. august 2009

Uppdeit

1) Flyt á þriðjudaginn í næstu viku inn í tvö herbergi í kollektívi á Amager. Þarf ekki að flytja þaðan í fyrirsjáanlegri framtíð. Jess. Þetta er í fjórða sinn sem ég flyt á minna en ári.

2) Á ekki bót fyrir boruna á mér.

3) Gengur ekki sérlega vel með mastersritgerðina, enda hefur allt verið á öðrum endanum hérna undanfarið.

4) Er öll í bólum og útbrotum. Veit ekki hverju þessu sætir.

Annars er bara allt í góðu, sko!

tirsdag den 4. august 2009

Det vælter med kamphunde ind over grænsen

Svona var yfirskrift B.T. í dag. Af þessu mætti ráða að hjarðir froðufellandi, glefsandi og gjammandi hundskrímsla rynnu í stríðum straumum yfir dönsku landamærin. Undir-yfirskriftin var: 20.000 kamphunde allerede i landet - der kommer flere hver dag! Mér finnst pínu erfitt að sjá þetta fyrir mér, en ef þeir segja að þetta sé svona, verð ég víst að reyna að trúa því. Eða ekki.

En já, ég er komin aftur til Kaupmannahafnar eftir 3 stórkostlegar vikur á Íslandi. Varð gersamlega yfir mig haus ástfangin af landi og þjóð, það var svo frábært að vera svona lengi heima að mér fannst ég í raun og veru heyra til á Íslandi í fyrsta sinn í ég man ekki hvað mörg ár. Mér fannst meira að segja þó nokkuð vera af álitlegum karlmönnum á vappi í Reykjavík, og það eru víst ein tíu ár síðan mér fannst það seinast. Hvað var ég svo að bralla þarna hjá ykkur? Jú, meðal annars:

- ganga á Fimmvörðuháls og dveljast einn og hálfan dag í Þórsmörk.
- keyra norður í Skíðadal á Kóngstaði og svo til Akureyrar í mat hjá Þóru, þaðan á Sauðárkrókinn til Siggu Stínu. Þess má geta að Fjóla keyrði mest alla leiðina og það var geðveikt stuð.
- trylla lýð og landa með Svenne-Banan laginu. Þeir sem eru ekki ENN búnir að kynna sér þetta mál eru beðnir um að fara inn á youtube og leita að nefndum titli.
- standa í ólöglega ósiðsamlegu djammi hverja einustu helgi. Meira að segja seinasta kvöldið sem átti að vera eitthvað rauðvínssull í sófanum í Álfatúni endaði á Ópalskotum, Prikinu og allra þjóða kvikindum á Kaffi Kúltúra.
- leika við börn vinkvenna minna, eða a.m.k. dást að þeim. Tinnubörn fékk ég að mata, baða og hátta og skemmti mér vel við það.
-leika við litla frænda minn sem ég er nú orðin jafnbrjáluð í og Bönga systir. Þvílíkt krútt.
- Elda handa mömmu litlu og Gunnari. Gunnar og örugglega ósköp feginn að losna við allt kanínufæðið sem ég var sífellt að bera á borð.
- Svo lét ég laga tattóið mitt og setja á mig nýtt. Það var hrikalega vont en á hinn bóginn mjög ódýrt. Svo fékk ég mesta dirty talk norðan Alpafjallanna með í kaupbæti, algerlega óumbeðið.

Og nú bý ég í kollektívinu heima hjá Ditte á Austurbrú, er byrjuð aftur að vinna og skrifa ritgerð, og reyna að fá einhverja stjórn á lífi mínu. Læt ykkur svo vita hvernig það gengur.

fredag den 19. juni 2009

Mér þykir hart að mér vegið þessa dagana. Frá liðinu þarna uppi, það er að segja. Vikan byrjaði með kómatós í Kommunernes Landsforening, þar sem ég átti að túlka fyrir gesti frá úkraínska stjórnarapparatinu. Skemmst er frá því að segja að þetta fór allt í vitleysu, ég mætti á réttum tíma og hafði undirbúið mig, en bölvaðir geitarskeggirnir voru þá auðvitað komnir löngu á undan og móðri og másandi var mér boðið að setjast við borð og byrja að túlka. Það var nú ekki að ég skildi ekki það sem maðurinn við hliðina á mér var að segja eða hvernig ætti að koma þessu til skila á rússnesku. Það var bara eitthvað við þessar formlegu aðstæður, fjölda jakkafata og gráa hára í herberginu og þeirri lamandi tilfinningu að minnsta villa í túlkuninni myndi hrinda af stað diplómatískri katastrófu á alþjóðlegu plani, sem gerði að öll mín rússneska var svo gott sem gleymd. Ég skalf á beinunum, tungan vöðlaðist saman í munninum á mér, ég svitnaði og mig svimaði og ég hef örugglega ranghvolft augunum þó nokkrum sinnum. Eftir u.þ.b. klukkutíma af þessum sjálfsköpuðu pyntingum var kvatt til hlés. Ungi aðstoðarmaðurinn kallaði hljóðlega á mig og tilkynnti mér með afskaplega vandræðalegu brosi að því miður væri víst best að ná í aðeins reyndari túlk, og ég gat ekki annað en verið honum hjartanlega sammála.

Ég engdist aðeins yfir þessari frekar óskemmtilegu reynslu í tvo daga, en þegar þjóðhátíðardagur okkar Íslendinga rann upp var mér orðið nokkurn veginn sama, og var búin að ákveða að taka "Ekki skal gráta Björn bónda, heldur safna liði og hefna"- afstöðuna á þetta.

Svo ætlaði ég að fara til Malmö með Annemette á morgun og kaupa mér nýja tölvu, tjald og eitthvað fleira skemmtilegt. Svíarnir ákváðu þá auðvitað að hafa Miðsumar þessa helgina og hafa LOKAÐ í búðum. Við urðum grautfúlar þegar við komumst að þessu og sótbölvuðum frændum vorum handan við sundið. Í ofan á lag er búið að vera rok og rigning alla helgina, ég þarf að flytja héðan á föstudaginn eftir viku og er eftir það heimilislaus.

onsdag den 10. juni 2009

Er að spá í að kaupa mér stuttbuxur frá Apple Bottom. Sá reyndar rónakonu í sömu buxum og ég hafði rétt verið að máta í dag og þá runnu á mig tvær grímur. Er samt enn spennt fyrir þessum stuttbuxum.

tirsdag den 9. juni 2009

Þegar fyrsta sjokkið við fréttina um yfirvofandi útburð var runnið af mér áttaði ég mig á að tilvonandi heimilisleysi í sumar felur í sér ýmislegt gott. T.d. að ég þarf ekki að borga húsaleigu fyrr en í september. Þessi uppgötvun kætti mig og uppörvaði svo óskaplega að síðan hafa eftirfarandi hlutir bæst við í veraldlegt safn mitt:

- Himinbláir skór sem einhver diskódrottningin hefur keypt sér fyrir tuttugu árum og svo aldrei gengið í.
- Bláköflóttar stuttbuxur úr sömu genbrugsbúllu og skórnir.
- Svört leðurtaska og eyrnalokkar frá Glitter.
- Leðurveski frá Afríku, keypti það reyndar í fairtrade-búð en ekki í Afríku.
- handkrem og naglalakk.
- Lítill hvítur blúndujakki, Aladdínbuxur og bleikur kjóll frá Vila.
- Einhver ógurleg ósköp af naríum og einn brjóstahaldari.
- Hello Kitty náttföt frá HM.

Já, ég er yfirborðsleg og ég veit það.

tirsdag den 2. juni 2009

Sólin skín og um það bil 25 stiga hiti úti. Mér sýnist að nýjasta accessorið hjá meirihluta kvenna hér í Kaupmannahöfn á aldrinum 22 - 35 (að ekki sé talað um ALLAR konur á Íslandi í þessum aldurshóp) sé eitt eða fleiri af eftirfarandi:

a) Hvítvoðungur með reikult augnaráð og patandi hendur.
b) smábarn með snuddu og gjarnan í yfirmáta krúttulegum skóm.
c) bumbu sem gefur til að kynna yfirvofandi heimsókn á Hvidovre Hospital.

Ég hef ekkert af þessu og er að íhuga að hafa samband við sæðisbanka eða jafnvel auglýsa í Søndagsavisen.