onsdag den 27. maj 2009

Ég þarf að flytja. Aftur. 1.júlí. Er að íhuga að sækja um pólítískt hæli og láta loka mig inni í flóttamannabúðum í staðinn fyrir þennan þvæling.

onsdag den 20. maj 2009

Hvað er með verðlagið á matvöru? Það er varla hægt að skotra augunum í átt að Netto án þess að það kosti í minnsta lagi 132 kr. Og þá er maður yfirleitt ekki að kaupa merkilegri hluti en kærnemælk, brokkólí, rúgbrauð og kannski einhvurja frosna fisktutlu. Mér finnst þetta vera farið að fara fram úr allri skynsemi.
Í gær ákvað ég svo að bregða út af hollustuvananum og keypti í sjálfsvorkunn kex sem heitir Nelly's Oat Cookies. Það leit út fyrir að vera a.m.k. ekki bráðdrepandi, alveg þar til ég fór að lesa aftan á pakkann. 43 grömm af fitu í hverjum 100 grömmum af vörunni. Í pakkanum voru 8 kexkökur sem samanlagt töldu 200 grömm (þegar þetta er ritað eru eins og hverjum má ljóst vera miklu færri kexkökur eftir í pakkanum). Það gera 86 grömm af fitu fyrir allan pakkann og rúmlega 10 grömm af fitu í hverri kexköku. Í HVERRI KEXKÖKU? Hver framleiðir svona lagað, og það sem meira er, hver kaupir svona lagað. Svarið er því miður - ég.

søndag den 17. maj 2009

Er fjarska sátt við frammistöðu Jóhönnu Guðrúnar í gær. Ég horfði á keppnina með Georgíumönnum sem varla héldu vatni yfir rödd og fegurð víkingaprinsessunnar á sviðinu. Á eftir hneyksluðust þeir á latexklæddum hommum og slúttuðu kvöldinu af með því að setja mig upp á svefnloft, kveikja á kertum og syngja sérsamda ballöðu fyrir mig. Rómantíkina skortir ekki þarna suður frá.

tirsdag den 5. maj 2009

Vangaveltur

Ég er 28 ára. Hvaða aldursmörk eiga konur eins og ég að setja á stefnumót? Bara að spá í þessu.