Þá er enn eitt árið að líða og svei mér þá ef þetta leið ekki aðeins hraðar en það sem kom á undan. Nú ætla ég að reyna að setja saman smá upprifjun af árinu 2008, þó ég geti nú varla með nokkru móti komið fyrir mig hvað gerðist á þessu ári.
Janúar: Ég fór með fyrsta fullorðinshópinn minn til Moskvu. Um var að ræða lítinn níu manna hóp á aldrinum fjórtán til sjötíu og eitthvað. Tilgangur ferðarinnar var að fræðast um rússnesk stjórnmál og koma sér í stuð fyrir yfirvofandi forsetakosningar. Í ljós kom hins vegar að ekkert af þessu fólki hafði nokkurn skapaðann áhuga á rússneskum stjórnmálum og virtist aðallega hafa farið í ferðina til að sjá Rauða Torgið. Mér var nú hálfskemmt við þetta.
Febrúar: Hmm...Hef ekki hugmynd um hvað ég var að gera. Örugglega bara í skólanum og vinnunni.
Mars: Fór til Rússlands með tvo hópa í röð og varð veik þegar fyrri ferðinni var að ljúka. Já, og svo veiktist ég reyndar áður en fyrri ferðin fór af stað, því vinstri efri endajaxlinn ákvað að nú væri rétti tíminn til að láta ljós sitt skína og var dreginn úr mér tveimur dögum fyrir brottför. Ég mætti því á flugvöllinn skökk og skæld og þvoglumælt í tali, en allt gekk eins og best var á kosið þar til ég veiktist undir lok ferðarinnar. Þegar grey seinni hópurinn mætti var ég gjörsamlega búin á því og það sannast best á því að ég man ekkert eftir neinum sem var í honum.
Apríl: Ég og Armen fórum til Berlínar að hitta pabba og Böngu, og það var skemmtilegt. Sérstaklega stendur upp úr heimsóknin á safnið þar sem hlið Babýlón eru til sýnis og svo auðvitað heil máltíð heima hjá pabba (einkagrín). Við gistum á hosteli sem er staðsett í útjaðri Berlínar og eiginlega úti í skógi, a.m.k. sáum við villigrísi á hlaupum nálægt hostelinu.
Maí: Hér fór ég í 1.maí-túr til Moskvu með níu gamlar konur, og það heppnaðist eiginlega alveg ferlega vel. Moskva var ekkert nema sólskin og heiður himinn og hátíðahöld í tilefni 1. maí, og gömlu kellurnar voru hæstánægðar með ferðina.
Júní: Ég fór í próf og fékk næstbestu einkunn og svo héldum við upp á 24 ára afmælið hans Armen. Byrjuðum á því að grilla í Nörrebroparken og fluttum okkur svo innan dyra þegar fór að rigna, og íbúðin okkar var svo full af fólki að ég hélt ekki að slíkt væri hægt. Svo keypti ég líka fjögur pör af skóm í einu í lok júní.
Júlí: Skellti mér til London að heimsækja Eilis og við fórum m.a. til Cambridge. Annars var rosalega gott veður þennan mánuð og ég lá aðallega bara í sólbaði á Islands Brygge. Þarna komst ég líka að því að Pétur væri fluttur til Kaupmannahafnar og við áttum skemmtilega endurfundi á Sankt Hans Torv. Síðan höfum við Armen ekki getað látið hann og Kristínu í friði, enda eru þau alveg frábær.
Ágúst: Við Armen fórum í hina frægu ferð til Tyrklands, þar sem margar rústirnar voru skoðaðar en ekki á neina strönd komið. Aldrei hef ég lent í öðru eins glápi á mína persónu og í þessu austræna landi, enda hef ég verið í vafa síðan hvort ég þori nokkuð að ferðast í Austurlöndum.
September: Þessi mánuður er eins og máður úr mínu minni.
Október: Þarna var ég í Rússlandi nærri allan mánuðinn og kreppan á Íslandi að byrja. Við vorum í brjálaðri húsnæðisleit allan mánuðinn og enduðum á því að taka íbúðina í Brönshöj, þar sem við búum núna. Síðan lok október hef ég s.s. verið úthverfafrú.
Nóvember: Þessi mánuður fór mestmegnis í að koma okkur fyrir í nýju íbúðinni, kaupa húsgögn og innanhúsmuni og venjast því að hjóla frá Brönshöj niður í bæ og út á Islands Bryggju í skólann. Svo héldum við líka innflutningskaffi um miðjan mánuðinn og Armen fannst við vera orðin mjög gömul fyrst að ekki var haldið almennilegt partí en bara eitthvað kaffisnakk seinnipart sunnudags. Jú, og svo borgaði ég 1,1 milljón ISK inn á námslánin mín.
Desember: Ég fór í augnaaðgerð og er nú með svo til fullkomna sjón, Lise og Eilis komu báðar í heimsókn og við Armen héldum okkar fyrstu jól án nokkurs annars, og keyptum meira að segja jólatré. Í lok þessa mánaðars kom líka ansi dýrt rugl í mínum launamálum upp á yfirborðið, og hefur það gjörbreytt minni fjárhagsstöðu á næsta ári. Ég nenni ekki að fara út í smáatriðin en vísa til status míns á Facebook í dag.
Gleðilegt ár og skemmtið ykkur vel á morgun!
Abonner på:
Kommentarer til indlægget (Atom)
2 kommentarer:
jæja, koma nú vafasöm kurl til grafar...."september einsog máður úr mínu minni" segir prinsessan. Leyfðu mér að fríska upp minni þitt systir góð,- varstu ekki m.a í heimsókn hjá MÉR, MOI, ME, MIR!!!!!????
Ég er sko ekkert sár og enn minna bitur.....
knúsí,
bönga
Já einmitt! Ég vissi að ég væri að gleyma einhverju! Og þá viðbeinsbrotnaði Armen líka með kunnum afleiðingum... Fyrirgefðu elskan mín, ég skil ekkert í mér að hafa gleymt þessari heimsókn.
Send en kommentar