torsdag den 20. november 2008
Útþrá
Undanfarnar vikur hef ég verið að bræða með mér hugmynd sem vex og vex að umfangi og æsileika. Mig langar að fara í bakpokaferðalag eftir útskrift. Fyrst til Rússlands, þar myndu aðaláfangastaðirnir vera Kazan, fyrrum höfuðborg tyrkneskra þjóðflokka í Rússlandi, Irkutsk og Baikalvatn. Þaðan yrði maður væntanlega að komast yfir Kína einhvern veginn, en það er bara svo andskoti stórt! Frá Kína til Tælands og gjarnan til Víetnam, og svo langar mig að stoppa í Kuala Lumpur, sem ég hef séð þætti um í sjónvarpinu og virðist vera ótrúlega spennandi borg. Þar þekki ég líka einn strák sem bjó á kollegíinu í Sankti Pétursborg. Lokaáfangastaðurinn yrði svo auðvitað Sydney og sófinn hjá Höllu og Nick. Langar einhvern að koma með?
Abonner på:
Kommentarer til indlægget (Atom)
1 kommentar:
Langar einhvern að koma með....eeee JÁ!!!! Ekkert sértaklega raunhæft reyndar en vaaaá hvað mig langar
Send en kommentar