onsdag den 25. marts 2009
Stund sannleikans
...rann upp í dag. Ég loggaði mig inn á Íslendingabók og komst að því að Íslendingar eru í raun og veru allir skyldir hvorum öðrum. Sumum er ég meira að segja skyldari en gott má heita. Smá flakk á þessari síðu setti virkilega hlutina í perspektiv, eins og Danir segja. Þetta er ekkert annað en hreint indavl. Það er sjálfsagt eins gott að til séu Íslendingar sem velja sér útlenska maka, annars er ekki gott að vita hvernig um væri að litast á Íslandi.
torsdag den 19. marts 2009
Stuttbuxur og stefnumót
Veit að yfirskrift dagsins hljómar eins og titill á unglingabok eftir Eðvarð Ingólfsson, en hún er einnig mjög lýsandi fyrir hugarástand mitt þessa dagana. Þetta er nefnilega svo asskoti skemmtilegt allt saman. Vorið er komið með glæsibrag og vonandi get ég lagt rauðu vetrarúlpunni í bili, svona nokkurn veginn. Danir eru eiturhressir og komnir út á gangstétt með teppi að sötra kaffið sitt, og eru ánægðir að hafa lifað af enn einn veturinn þar sem meira að segja snjóaði á þá. Hitt er svo annað mál hvort maður lifi af þessa síðustu og verstu þar sem byssukúlum rignir yfir saklausa borgara. Reyndar hef ég ekki enn séð neinn með byssu svo alslæmt getur það nú ekki verið.
En jæja, ég fór galvösk í Illum í dag með gjafabréf sem ég fékk í afmælisgjöf, og festi kaup á sólarkremi (maður verður víst að nota svoleiðis allan ársins hring til að verða ekki eins og undin tuska í framan, samkvæmt sérfræðingum) og rósaolíu frá Dr. Hauschka. Konan sem seldi mér dýrindin gaf mér svo augnmaska, andlitsmaska og lavenderbaðolíu með og var ég ánægð með það. Svo ráfaði ég um og skoðaði í búðir og fór svo út í skóla að hitta leiðbeinandann minn til að ræða meistararitgerðina. Honum fannst ég vera með fínar hugmyndir og hvatti mig einast til að byrja á verkinu sem fyrst. Á leiðinni út í skóla kom ég svo við á nokkrum veitingastöðum til að sækja um vinnu fyrir sumarið - er að fara að hætta á ferðaskrifstofunni 1.maí og mikið lifandis ósköp verð ég fegin að geta hætt þessu ritarastússi. Það á sko ekki við mig. En seinustu tveir staðirnir sem eg kom við á virtust í raun og veru hafa áhuga á að ráða mig í vinnu og það glæddi von mína um að ég myndi kannski geta potað mér einhvers staðar inn.
Svo þegar ég var búin að funda við leiðbeinandann hélt ég út í Frederiksberg Center og festi kaup á tveimur bolum, sem eru fyrstu flíkurnar sem ég hef keypt mér í marga mánuði. Eða að minnsta kosti þrjá. Nú er ég nokkuð sátt, og ætla að njóta kveldsins í félagsskap álfakroppanna í Top Model og liðsins á Bráðavaktinni. Jafnvel með yngjandi maska framan í mér (veit reyndar ekki hvort ég þarf á slíku að halda, fólk heldur enn að ég sé 21s) og táslurnar ofan í lavenderfótabaði.

torsdag den 5. marts 2009
Vorölvun
Er eðlilegt að vera í svona miklu stuði? Ég er nýhætt með manninum sem ég taldi vera hinn eina rétta, er skuldum vafin, skítblönk og að drukna í verkefnum, en samt er ég í trylltum fíling, langar helst að vera á diskótekum að hoppa og skoppa annað hvert kvöld. Er þetta normalt?
onsdag den 4. marts 2009
Grá birta vorsins hefur lagt sig yfir Kaupmannahöfn. Ég veit alltaf að vorið er komið eða a.m.k. rétt ókomið þegar birtan er ljósgrá yfir Nörreport og fólk horfir á hvert annað í staðinn fyrir að æða niðurlútt hjá. Svo fór ég líka um daginn út í búð í vinnunni og fór ekki í jakka. Minnsta kosti þrír strákar í vörubílum gláptu/flautuðu. Það hlýtur að vera öruggt merki þess að tekið er að vora og hormónarnir að vakna úr vetrardvala. Ég vil taka fram að ég var í lopapeysu og sandölum, en reyndar í stuttbuxum og sokkabuxum. Það voru kannski stuttbuxurnar sem ærðu þá.
Abonner på:
Opslag (Atom)